🔥 Earn $600 – $2700+ Monthly with Private IPTV Access! 🔥
Our affiliates are making steady income every month:
IptvUSA – $2,619 • PPVKing – $1,940 • MonkeyTV – $1,325 • JackTV – $870 • Aaron5 – $618
💵 30% Commission + 5% Recurring Revenue on every referral!
👉 Join the Affiliate Program Now Bubbi Morthens
Stimpilklukkupabbar
Dagar víns og rósa og rómantískra nátta
Reyndust skammlífari en þau vildu bæði
Nú rignir tárum og tryggðin er dimmur skógur
Og ástin er hjá öðru fólki í fæði
Dagar kulda og gremju ganga hér um húsið
Gaddavírinn kaupa, víglínan er dregin
Að morgni þau mætast og sáttmálinn er rofinn
Mæla ekki orð og ganga út á veginn
Húsdýragarðinn pabbarnir ganga
Fleiri en einn, laugardaga langa
Einmana hjörtu og hópurinn labbar
Stórir og litlir stimpilklukkupabbar
Það er barist um börnin og orðin ekki spöruð
Fráskyldum feðrum smalað er í réttir
Hún fékk allt, þeir þora ekki að kvarta
Nema á börunum blóðugar segja fréttir
Upp á náð og miskunn þeir mega hitta börnin
Og mæna á húsið sem þeir byggðu forðum
Á Macdonalds fara með börnin sín að borða
Með brotið sjálfstraust og höfuðfylli af orðum
Dagar víns og rósa og rómantískra nátta
Reyndust skammlífari en þau vildu bæði
Í skotlínunni börnin lenda saklaus
Og hjörtun verða vígvallarsvæði