🔥 Earn $600 – $2700+ Monthly with Private IPTV Access! 🔥

Our affiliates are making steady income every month:
IptvUSA – $2,619 • PPVKing – $1,940 • MonkeyTV – $1,325 • JackTV – $870 • Aaron5 – $618

💵 30% Commission + 5% Recurring Revenue on every referral!

👉 Join the Affiliate Program Now
Bubbi Morthens
Klóakkrossfarar

Frjálsir við erum, fellum ekki dóma
Flíkum aðeins því sem tíðast ber á góma
Oftast við reynum rjómanum að fleyta
Reyndin er sú að við erum sífellt að leita

Náðu þér í eyðni, þú endar á mynd
Enginn þarf að segja okkur það geti kallast synd
Forsíðan í einn dag, framtíðin í tvo
Síðan færðu okkar samvisku og hendur til að þvo

Við nærum þig á hörmungum og hryllingi í dag
Því heilbrigð frétt er lásí tónn og illa sungið lag
Mannorð þitt er okkar matur, punktur, komma, strik
Við myrðum þig og blásum burt, sem þú værir ryk

Geiríkur ég heiti, heillin mín góða
Hentu í mig lyginni, kallaðu mig sóða
Með gáfunum ég punta mig, með penna vil ég stýra
Með prúðmennsku enginn getur selt slúðrið dýra

Við nærum þig á hörmungum og hryllingi í dag
Því heilbrigð frétt er lásí tónn og illa sungið lag
Krossfarar við erum í klóaki með frétt
Við kennum ekki siðfræði, hvað sé rangt og rétt