🔥 Earn $600 – $2700+ Monthly with Private IPTV Access! 🔥
Our affiliates are making steady income every month:
IptvUSA – $2,619 • PPVKing – $1,940 • MonkeyTV – $1,325 • JackTV – $870 • Aaron5 – $618
💵 30% Commission + 5% Recurring Revenue on every referral!
👉 Join the Affiliate Program Now Bubbi Morthens
Sú sem aldrei sefur
Ég sat í grýttri fjöru, í firði úti á landi
Og fegurð hafsins hvíslaði: Rekkja mín er blá
Ég sá kolluungann tukta sinn og tófuspor í sandi
Og ég talaði við múkkana sem svifu þarna hjá
Í fjöllum skuggar birtust og birtu tók að halla
Bráðum kemur nóttin með sitt huldufólk og troll
Í bergi fuglinn liggur, þar lætur súlan sig falla
Á leifturhraða í hafsins djúp, frá svarthvítri höll
Og þá heyrði ég hafið hvísla:
Ég er tárin, hin söltu tár úr augum mæðranna
Úr augum dætra, úr augum sona ykkar
Ég er tárin, hin söltu tár úr augum feðranna
Úr augum himins þau falla er ég anda
Ég er sorgin sem aldrei sefur og ég vaki við
Og ég vaki við strendur allra landa
Ég sat í grýttri fjöru, í firði úti á landi
Og fegurð hafsins hvíslaði: Skipin sigla senn
Og það sagði: Þeir sem elska mig orpnir verða að sandi
Enginn getur tamið mig, hvorki vættir né menn