Traditional
Komdu nú að kveðast á
Komdu nú aö kveðast á, kappinn, ef þú getur, láttu ganga Ijóðaskrá Ijóst í allan vetur

Rímnahættir hressa lund, halir við þá kætast, látum nú um litla stund lag og bögu mætast

Tíminn hraði háður er hörðum skaðakjörum lyndisglaður leik ég mér lífs í svaðilförum

Mig vill fergja mæða' og slys, má því kergju bera
Ég er erginn innvortis, eiri hvergi' að vera

Allt vill ganga andhælis, allt vill ranga veginn
Allt vill spranga úrhendis, allt vill þangað megin

Nökkva lífs á nýjan vog nú skal hrinda' úr sandi. Enginn veit hvað áratog eru mörg að landi

Illa gróa sumra sár, svona þó er varið, bágt er að róa einni ár, ef á sjó er farið

Réna tekur róms um port ræðan stirð að vanda
Hef ég á máli skýru skort, skal því ríman standa