Traditional
Ég vil fá mér kærustu
Ég vil fá mér kærustu sem allra, allra fyrst
En ekki verður gott að finna hana
Því hún skal hafa kinnar eins og hrútaber á kvist
Og hvarmaljósin björt sem demantana

Hún skal vera fallegust af öllum innanlands
Og iðin við að spinna og léttan stíga dans
Og hún skal kunna að haga sér hið besta

Þær eru flestar góðar meðan unnustinn er nær
En oss þær eru vissar til að blekkja
En ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær
Sem elskar mig og bara mig vill þekkja

Og hún skal líka finna bestu hugarró hjá mér
Ef húsi mínu færir hún iðni og dyggð með sér
Og stóra, fulla kistu bestu klæða

Og ef ég svo í eina næ rétt alveg sem ég vil
Þá óðara til brullups skal ég feta
Og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til
En vín og hrokafylli sína éta

Og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð
Hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð
En til þess verður ofurlitlu að eyða