Hatari
Dansið eða deyið
**** := From the live version
****
[MATTHÍAS:]
Við erum Hatari!
Við erum öll Hatari!
Við erum varan og neytandinn!
Við erum múrverkið og mótmælin!
Við erum glæpurinn og böðullinn!
Við erum Bastillan og við erum byltingin!
****

Þrælar
Gengilbeinur ræningja
Tannlausu kjölturakkar
Sníkjudýr brauðmylsna
Blindingjar og aumingjar
Neytendur og klámhundar
Grindhoruðu betlarar
Marklausu peð
Leiksoppar hrægamma
Úrhrök
Sameinist, ómagar, bak í bak og dansið

[Klemens:]
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey skal ég dansa með þér
Já, skal ég dansa með þér
[Matthías:]
Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans
Steypið af stóli þrælapískaranum og látið hann súpa
Eigið meðal
Setjið hann undir okið
Sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar
Bak í bak og dansið

[Klemens:]
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey skal ég dansa með þér
Já, skal ég dansa með þér

Við deyjum öll, ég vil deyja með þér
Sama hvað, sama hvert ég fer
Við deyjum öll, þú munt deyja með mér
Áður en ég fer, áður en ég fer
Skal ég dansa með þér

[Matthías & Klemens:]
Dansið eða lútið oki kúgarans
Áður en ég fer, áður en ég fer
Það er núna eða aldrei
Dansið eða deyið
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Dansið eða lútið oki kúgarans
Áður en ég dey skal ég dansa með þér
Það er núna eða aldrei
Dansið eða deyið
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Dansið eða lútið oki kúgarans
Áður en ég fer, áður en ég fer
[KLEMENS:]
Skal ég dansa með þér

****
[KLEMENS:]

(Ómagar...)

[MATTHÍAS:]

Dansið, eða lútið oki kúgarans!

[KLEMENS:]

(Kúgarans, kúgarans, kúgarans...)

[MATTHÍAS:]

Það er núna eða aldrei!
Dansið eða deyið!

[KLEMENS:]

(Dansið eða…)

[MATTHÍAS:]
Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans!

[MATTHÍAS AND KLEMENS:]

Steypið af stóli þrælapískaranum og látið hann súpa...
...eigið meðal!
Sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar!

[MATTHÍAS:]

Sameinist, ómagar, bak í bak og dansið!
Dansið eða lútið oki kúgarans!

[KLEMENS:]

(Kúgarans, kúgarans, kúgarans...)

[MATTHÍAS:]

Það er núna eða aldrei!
Dansið eða deyið!

[KLEMENS:]

Mín fagra, kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er
Við munum saman líta
Hug minn klofna á enda veraldar
Fylgi þér hvert sem er
Mín fagra, kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er
Mín fagra kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er...
****